18.4.2008 | 15:48
B O R E D
Ég sit hérna í vinnunni og læt mér leiðast. Frá því klukkan hálf tvö er ég búin að gera 4 hluti í vinnunni: Taka á móti plakötum, hleypa Ragga inn, segja konu að spegillinn hennar sem hún týndi í gær sé ekki hérna og afhenda einum manni miða. Mjög afkastamikill dagur.
Svo er ég búin að kynna mér ágætlega launatöflur Reykjavíkurborgar og allt það saman svona til þess að maður hafi einhverja hugmynd um hvaða laun standa manni til boða í sumar.
Svo er ég líka búin að vera að senda góða strauma til Guðrúnar Sóleyjar en hún er um það bil að klára lokaviðtalið sitt núna sem mun skera úr um hvort hún sé á leiðinni í LHÍ eða ekki! Spennandi!
Ætla að fara og finna út hvaða orð sé hægt að skrifa á vasareikni!
Athugasemdir
jesss summan af tíu og átján og ég svaraði átján
ég held ég þurfi að taka þriðja bekk aftur...
takk fyrir góðu straumana, þeir virkuðu vel!
eeen þetta kemur samt allt saman í ljós...
ég er með orð fyrir þig á vasareikninn: ASShOLE
vá ég var alveg vangefiðgóð á orð á vasareikni einu sinni
verður samt að snúa honum á hvolf svo þetta virki
guðrún sóley (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 22:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.