Laugar


Er heima á Laugum núna og mikið er það gott!

Er búin að fara í sundlaugina hérna í garðinum og svo þarf að testa pottinn og grillborðið!

Er búin að snúast líka í Londonar-málum og þar virðast hlutir vonandi vera að skríða saman!

Fór niður í framhaldsskóla áðan að hitta á pabba og það var ekkert smá skrítið að vera þarna og skólinn að byrja! Vakti upp margar skemmtilegar og skrítnar tilfinningar.

Er annars bara að slappa af, borða góðan mat og leika við bræður mína. Stefnt er á að kíkja í berjamó í vikunni ;o)

Ætla að fara að leika!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Jenný ! Vonandi helduru áfram að vera dugleg að blogga því ég ætla að verða fastagestur hjá þér ...

Maður verður að hafa e-ð að gera hérna í útlandinu annað en að læra og djamma :)

það hafa ekki allir þann munað að geta skroppið í berjamó :P 

Helgi (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 17:50

2 identicon

Æji eigum við ekki bara að slútta öllu og fara bara á Lauga?? :)

Sólveig Ingólfs (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband