Prjóni


Í dag vaknaði ég ekki fyrir hádegi. Ég vaknaði tuttugu mínútur yfir það. EN mér var ekki kalt! Það var bara eðlilegt hitastig inni í herberginu. Nokkuð gott.

Hef gert nákvæmlega ekki neitt í dag. Kláraði Tudors-seríuna sem mamma var að panta af Amazon. Horfði líka á uppfærlsu haustsins á Don Giovanni hjá ROH á síðunni þeirra. Það var fínt. Góður söngur og leikur en umgjörðin var frekar þung og leiðinleg fyrir minn smekk.

Prjónaði líka, ójá. Er núna búin að rifja upp hvernig á að prjóna brugðið og hvernig á að ljúka prjóneríi. Og ég er komin með einn og hálfan svona Armwarmers/armahlífar. Saumaði svo meira að segja perlur í þann sem er tilbúin og læti. Svo gerði ég protoýpuna að prjónuðu armbandi. Jáhh geri aðrir betur.

Og eldaði aftur indverska réttinn minn. Hammananamminamm!

Hef líka komist að því að almenningssamgöngur letja mig til ferða. Ég ætlaði að fara að kaupa mér steppskó í dag og taka passamynd af mér en ég vissi að ég þyrfti að hafa fyrir því að ferðast niður í bæ fyrir steppskóna þannig ég nennti því bara ekki. Kemur í hausinn á mér á miðvikudaginn. Er líka bara eiginlega ekki að tíma því því þeir kosta 50 pund og ég gæti farið 4x í leikhús, óperu eða í bíó fyrir það. Og af því ág þarf að kaupa skóna þá mun ég ekki geta leyft mér neitt í þessum mánuði. Dýrt spaug þetta nám sem maður hefur velið sér.

Þarf að fara að koma mér í gírinn að fara eitthvað út um helgar. Fara á kaffihús eða í göngutúr. Bara nenni því svo innilega ekki. En það er svo hollt fyrir sálartetrið víst.

Geri það næstu helgi. Þá VERÐ ég að kaupa steppskó.

Redda passamyndinni á morgun.

Boring blog.

Bæ.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég kannast við þessa almenningssamgöngu leti. Ég ætlaði mér að fara oftar í skólan , þó ég ætti ekki að fara í tíma og bara læra á bókasafninu og hanga með fólkinu. En svo nenni ég því aldrei. Finnst að læra heima. Fer bara í skólan þegar ég virkilega þarf þess...

helgi (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 09:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband