Færsluflokkur: Bloggar

Ástæðan fyrir því að maður á ekki að gleyma að blogga svona lengi!

Jæja! Ég virðist ætla að gera það að vana mínum að blogga á 10 daga fresti!

Mér finnst samt mjög gaman að blogga og skoða annarra blogg en ég bara er eiginlega aldrei á netinu! Svona er það að vera ekki bara í skóla og ekki í vinnu þar sem þú hefur tíma til þess!

Það var ótrúlega næs að fara norður, bara yndislegt! Hitti marga en ekki alla og eyddi fínum sunnudegi á náttfötunum heima við að gera allt og ekkert :o) Og fór í ökumat og bíð nú eftir nýja ökuskírteininu mínu :o)

Fór í leikhús og sá Herra Kolbert en vegna eigin heimsku sá ég bara helminginn af sýningunni (þó mér finnist nú að það eigi að ítreka það við mann ef sýningar hefjast á öðrum tíma en hinum almenna 20:00) En ég virðist hafa komið inn á fínum stað því ég vissi forsöguna svona aðeins og svo fylltist upp í götin þegar leið á ;o) Fínasta sýning þó mér hafi nú fundist gengið einum og langt einu sinni...þegar pissað var og það var ekki á klósettinu...og svo viðurkenni ég það hér með að mér finnst piss, kúk og prump húmor bara afskaplega takmarkað fyndinn! Gerist þó kannski einstöku sinnum...En já maður var mikið að hugsa aftir sýninguna :o) Og eins og ég hef sagt áður þá finnst mér það alltaf skemmtilegt :o) 

 Eftir sýninguna kíkti ég svo aðeins niður í bæ með Sólveigu, Eddu og Guðrúnu, en var bara róleg þar sem ég var á bíl og stutt í próf :o) Var samt mjög gaman og næs :o)

Eins og fyrr segir var ég bara róleg á sunnudeginum í náttfötunum, kíkti á Fanney í vinnuna, bakaði og skreytti piparkökur, borðaði og lærði að elda Buffalo-wings a la Pabbi og svo spiluðum við Fanney LOTR Trivial 2x og vann ég í annað skiptið! Hef aldrei verið jafn heppin að lenda á kökureitum og held ég hafi aldrei átt svona mikið af góðum giskum á jafn stuttum tíma!! :o)

Svo núna síðustu vikuna er ég búin að fara aðeins í nudd og nálastungur, hitta vini mína, minnka kröfurnar til mín sjálfrar og viti menn, ég er öll að hressast :o) Og meira að segja farin að vera orkumeiri :o) 

 Sem er bara jákvætt því að miðstigsprófið er á miðvikudaginn!!! En það gek vel í undirleikstíma í gær þannig ég er bara bjartsýn :o)

Fór líka á Show business dagskrána hjá óperudeildinni í gærkveldi og þetta var alveg frábært hjá þeim!! Söngurinn auðvitað frábær en svo voru þau líka með allskonar dansa og hreyfingar auk þess sem þau höfðu sína karaktera og var þetta æðislegt! Skemmtileg kaffihúsastemning í gangi og læti ;o) Mjög skemmtileg kveldstund og fólk ætti endilega að kíkja á aukasýninguna sem verður núna á þriðjudagskveldið :o) Bara hringja í síma 552-7366 og panta miða :o) 

Fór líka á útgáfutónleikana hans Helga Rafns á miðvikudaginn og var það einnig mjög næs kveldstund :o) Þrátt fyrir að þetta væri á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu var mjög hlýleg, já rauninni bara heimilisleg stemming :o) Og svo er alltaf gaman að geta verið stoltur af vinum sínum :o) Og maður er bara rífandi stoltur af þessum dreng! Kannski er ég skrítin en mér finnst ég alltaf eiga smá ögn í vinum mínum, því þeir eiga alveg nokkrar agnir í mér, og leyfi mér því að vera stolt  af þeim :o) Á tónleikunum spilaði hann líka nýja lagið sitt sem er lítil og sæt feel-good saga og er mjög fallegt :o) Eða það finns mér allavega ;o) En tónleikarnir voru teknir upp af Sirkus tv og verða kannski einhverntíman sýndir og þá ætti fólk alveg að tékka á því :o)

 Ég fór líka á útgáfutónleika hjá Ampop í vikunni, nákvæmlega á föstudaginn. Áttu að vera á Nasa en vegna bókunarhæfni Nasa þá fluttust tónleikarnir yfir á Gaukinn. Þar var mjög kósí og leið manni eins og manni hefði bara verið boðið í heimsókn...bara verður meira...þoli ekki þegar mig vantar orð...kannski intimate...já intimate þegar allir eru svona í kös og sviðið er lágt og lítið...hefði verið meira show á Nasa sem er líka gaman :o) En þetta tókst mjög vel hjá þeim og lýst mér bara vel á nýju lögin og hlakka til að eignast plötuna :o) Svo var líka slatti af gulbrúnu flaueli þarna ;o)

Já svo var xfm forsýning á Grudge 2 á fimmtudaginn!! Flemming hafði komið að máli við mig um að ég og fólk úr Hugleik myndum vera með eitthvað húllumhæ þar og við Anna Begga og Hjalti sáum um það. Það gekk vel miðað við að við höfðum ekki fengið neitt færi á að undirbúa okkur! En Begga fór á kostum inni í sal, Hjalti sá um sitt litla hlutverk og ég fékk að bregða ca. 150 manns :oD Shit það var gaman! Og allir voru mjög sáttir við okkur :o)

En nú er þetta líklegast orðið alltof langt blogg þannig ég ætla að fara að halda kjafti! 


Allt og ekkert...samt aðallega ekkert

Hér sit ég og bíð eftir því að geta farið út á flugvöll....

 ...og þarna sitjið þið og eruð ekki að kommenta ;o)

Ég hef samt sjaldan verið að böggast út af kommentaleysi upp á síðkastið þó svo að það hafi átt stóran þátt í ákvörðun minni að flytja bloggið mitt....Enda er ég afskaplega lélegur kommentari sjálf!

 Sykurmolarnir voru fínir í gær og gaman að heyra lög sem maður hefur ekki heyrt áður, enda hef ég ekki mikið hlustað á þessa hljómsveit...En þetta var skemmtileg kveldstund :o) Líka gaman að ná loksins að hitta hana Völu mína aðeins :o)

Og á eftir hitti ég hana Sólveigu mína sem ég hef ekkert hitt af ráði síðan síðustu jól!!! Bara aðeins í hálftíma þarna um daginn!! 

 Og svo Fanney systir :oD JEIJEIJEI! Sakna hennar alltof mikið alltaf!

Og svo kíkir maður kannski á Eddu og Ottó og Guffu, Stellu og Baldvin...Hver veit?

 En jæja nú get ég laggt af stað út á flugvöll eftir svona 10 mínútur :oD Ætla að fara að finna kvittunina og passa að ég sé örugglega með allt :o)

Gaman að spjalla við ykkur um ekkert :o) 


KALT!

Já! Nú er Jenný dugleg! Eða kannski duglegri...telst kannski ekki alveg duglegt að blogga með 3 daga millibili eða hvað það nú er....allavega ekki í mínum bókum! En það er nokkuð gott samt!

 Í dag er dagur íslenskrar tungu og fékk Hugleikur sérstaka viðurkenningu fyrir stuðning við íslenska tungu :oD Þau eru veittí tengslum við verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og var þetta í 11. skiptið sem þau hafa verið veitt! Til hamingju Hugleikur og Hugleikarar :o)

 Ég var einmitt um daginn að útskýra þetta félag fyrir einhverjum og um leið og ég var að lýsa hversu fjölbreytt og margþætt starfið er þá áttaði ég mig á því sjálf hversu geðveikt þetta er...hef aldrei pælt í því þannig lagað...þetta var bara eðlilegt...en þetta er það bara samt ekki! Bara geðveikt!

 Hvað er svo málið með þennan helv... kulda?? Ég klæði mig í öll mín föt og er samt að frjósa! Þetta er hroðbjóður! En það hefur virkjað ímyndunaraflið og er ég byrjuð að gera snið fyrir flíspeysu sem poppaði upp í kollinum á mér einn daginn þegar ég var algerlega að frjósa!!

Svo er maður búinn að bæta á ullarsokksafnið og má alltaf bæta við það! Merkilegt hvað ullarsokkar gatast miklu fyrr en venjulegir sokkar...! Og maður er komin með sokkabuxur sem eru bómull að innan og ull að utan :o) Þó mér líki betur við kulda en hita þá má nú öllu ofgera!

Svo er ég að fara heim yfir helgina :o) Hef ekki komið heim (as in Laugar) síðan í ágúst og þá var eiginlega enginn heima því allir voru svo bissí að fara til útlanda eða eitthvert annað á landið! En núna verða allir heima :o) Og ég ætla ekki að taka neitt námstengt, formennsku-tengt, söngtengt, óperukórstengt, leiktengt eða bara ekkert tengi yfir höfuð með mér! Ég ætla að fara og slappa af!

 Það er nefnilega einhver lurða búin að vera í mér...einhver þyngsli...og það er svo ömurlegt! Það er sérstaklega ömurlegt því það eru bara 2 vikur í miðstigspróf og þegar ég lendi í svona þyngslum þá er eitt af "einkennunum" að ég syng afskaplega illa og fæ alveg svaðalega ljóta rödd! Allavega samkvæmt mínum eyrum.

Aðallega er ég nú þreytt því ég er satt best að segja algerlega búin að ofkeyra mig í haust! Er reyndar soldið búin að týna mér og er ekki að sjá fram á að hafa tíma til að finna sjálfa mig fyrir jól...En alltaf gott að nota hátíðarnar í svoleiðis dóterí ;o)

 Reyndar soldið merkilegt hvað frí, eiginlega sama hvaða frí og hvernig því er varið, það verður aldrei neitt frí! Alltaf skal ofhlaða það af stöðum sem þarf að koma við á, fólki sem þarf að hitta, hlutum til að sjá....etc. Ég er að pæla í að eyða jólunum núna bara í frí...Langar t.d. rosalega að eyða áramótunum bara í sumarbústað að lesa bækur, hlusta á tónlist, spjalla, sofa og borða :o) That would be perfect! En einhvern vegin efast ég um að ég eigi eftir að gera það! Ef ég eyði jólunum hjá pabba og Heiðu þá á mamma áramótin ef hún er á landinu og svo er alltaf fullt af partýum sem maður þarf (as in langar) að kíkja í og svona...En kannski maður taki næsta ár í að plana bara bústað yfir áramótin '07-'08 með fámennum en góðmennum hóp af fólki og góðum og miklum mat :o) Hver er memm??

 En núna er ég bara farin að bulla meira en nokkrum manni er hollt og ef þið eruð ennþá að lesa þá eruð þið líka búin að lesa meira af rugli en nokkrum manni er hollt...sem gerir okkur nokkuð jöfn...sirka...!


Eins trés hæð

Jæjajá! Langt síðan síðast!!!

 Held ég hafi sjaldan verið jafn löt að blogga! Reyndar er mikið að gera og líf mitt búið að vera ansi þvælt upp á síðkastið en núna er ég að vinna í því að ná því á réttann, skipulagðann kjöl aftur ;o)

 Byrjaði á beðherberginu...Er búin að vera að reyna að þrífa það aðeins en á fostudagskveldið komst ég að því að það var ekkert mjög gjarnt á að láta þrífa sig...2 umferðir með Cif og enginn munur sást! Þá var náð í gömlu, góðu stálullina ;o) Og galdrar gerðust! Núna er sturtan mín loksins orðin hrein og fín og líka gólfið á baðherberginu!! Ég þoli illa skítug böð og sturtur...Og þetta tók allt í allt 3 tíma...núna er bara eftir klósettið, skápurinn og vaskurinn...já og veggirnir að neðan :o) Tek það kannski í kveld ef ég verð í stuði ;o)

 Fór í leikhús á sunnudaginn...fór á Umbreyting-ljóð á hreyfingu. Það er yndisleg sýning! Svo falleg og snertir mann svo mjúklega, sorglega og gleðilega! Algert augnakonfekt og sálargull! Ekki láta þessa sýningu framhjá ykkur fara! Feel-good sýning af bestu gerð :o)

 Já síðan í síðustu viku sýndum við afrakstur námskeiðsins hjá Benna Erlings og Charlotte í Þjóðleikhúskjallaranum við góðar undirtektir :o) Mjög góður endir á fræðandi námskeiði. Forvitnir geta séð gagnrýni á tmm.is en því miður held ég að ég geti með vissu sagt að þeir sem misstu af þessu séu algerlega búnir að missa af þessu :o/

 Fjölskyldan mín að norðan lét líka aðeins sjá sig í bænum og var mjög gaman að hitta þau...held ég hafi ekki hitt þau síðan í ágúst! Er líka að plana að fara norður næstu helgi :o) Er farið að langa mikið heim í Fjall :o)

 Svo komu mamma og Gulli heim frá Kosovo í gær og það var gott að fá þau heim :o)

Held það hafi fátt annað svona merkilegt drifið á daga mína síðustu daga, en þó gæti það alveg verið...minnið er bara svo agalegt!!!


Varð bara að deila þessu með ykkur!

Hef aldrei lent á neinni stjörnuspá, eða hvað maður ætti nú að kalla þetta, sem lýsir mér svona vel!

JUNE=SHYNESS
Fun to be with. Loves to try new things. Boy/girls LOVE you. Secretive. Difficult to fathom and to
be understood. Quiet unless excited or tensed. Takes pride in oneself. Has reputation. Easily
consoled. Honest. Concerned about people's feelings. Tactful. Friendly. Approachable. Emotional temperamental and unpredictable. Moody and easily hurt. Witty and sparkly. spazzy at times.Not revengeful. Forgiving but never forgets.
dislikes nonsensical and unnecessary things. Guides others physically and mentally. Sensitive and forms impressions carefully. Caring and
loving. Treats others equally. Strong sense of
sympathy. Wary and sharp. Judges people through observations. Hardworking. No difficulties in studying. Loves to be alone. Always broods about the past and the old friends. Waits for
friends. Never looks for friends. Not aggressive unless provoked. Loves to be loved. Easily hurt
but takes long to recover.


Skipt um blogg

Jáhh, þá er ég bara byrjuð að blogga hérna!

 Búin að henda inn slatta af myndum en er ennþá að reyna að finna út úr þessu með lögin :o?

Held samt að ég muni ekki henda inn myndum sem voru á jennzla.spaces.live.com enda verður það alveg til áfram ;o)

Bennanámskeiðið gengur vel og var tekin svakaleg törn í gær!!! Úff!!! Svo verður fyrsta sýning á sunnudagskveldið í Þjóðleikhúskjallaranum...ég minni ykkur aftur á það, engar áhyggjur ;o)

Svo er ég að æfa og æfa lögin mín....núna er ég aðallega að æfa framburðinn minn og þá sérstaklega í þýskunni....Það á ekki að syngja á þýsku! Maður er alltaf að spara loftið og þá koma ljót orð eins og ich, mich, dich, schlussen og eitthvað þannig þar sem maður verður að blása frá sér eins og vindurinn svo fólk haldi ekki að maður sé bara að segja í, mí, dí og slussen!!! Ég hef aldrei verið sérstaklega hrifin af þjóðverjum eða þýsku og þetta er alveg endanlega að drepa þjóðverja og þýsku fyrir mér!

 Málið er samt aðallega það að ég er bara eiginlega alveg komin með ógeð á lögunum mínum, enda fer ég yfir hvert og eitt svona 10 sinnum á dag því ég er með fullkomnunaráráttu frá helvíti og ég skal skal skal fá góða einkunn á miðprófinu mínu! A.m.k. vil ég vera fullviss um að ég eigi góða einkunn skilið, hvort sem ég fæ hana eður ei!

 Svo var Fanney systir hjá mér í nótt og við spjölluðum LENGI og svo skutlaði ég henni í flug áðan en hún var að fara til London að heimsækja Kolla og Þóru :o)

  En núna er ég búin að hanga í tölvukvikindinu í 3-4 tíma þannig ég er komin með fullkomið ógeð á því!!!

 


Jáhh kannski það!

Já hvur fjandinn! Þetta er bara nokkuð nett kerfi!! Bjóst nú alveg við því sossum ;o) Maður treystir vinum sínum jájájájá ;o)

 Nú er bara stóra spurningin....mun textinn detta út ef ég er lengi að skrifa???

Svona þegar ég skoða þetta betur þa held þetta sé bara með bestu kerfunum sem ég hef hitt!!!

 Þó væri ég alveg til í að hafa fleiri kosti í útliti...but that's not very important!

Kæru bloggarar endilega tékkið á þessu kerfi...ég reyndar á eftir að testa það alminnilega en fyrstu kynni lofa góðu :o)


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband