Færsluflokkur: Bloggar
22.6.2008 | 23:54
Hæ og bæ!
Jæja já það er langt síðan ég bloggaði síðast! Er samt búin að vera að safna bloggefni í sarpinn en það eina sem ég man eftir er:
Gael Garcia Bernal er meira að segja hot sem kona!
Það var drullugaman í Skólanum!
Ég er samt enn ekki orðin fullfrísk eftir hann!
Ég er hundþreytt!
Og ég er á leiðinni til Stokkhólms og mig langar lítið til að fara ein! Er enginn þarna úti sem langar til að "live a little" og skella sér með mér fyrstu helgina í júlí?
Annars fer ég bara ein, sinni mínum málum og kem svo aftur heim.
Það er bara pínu leiðinlegt að fara til útlanda en sjá ekkert af blessaðri borginni!
Er algerlega andlaus með öllu nema remolaði!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.6.2008 | 13:20
Kveðja
Bara að smella á ykkur nokkrum kossum.
Það er víst netsamband hérna í skólanum, reyndar bara ein lítil snúra, en það er þó netsamband.
Hér er ég búin að læra að ríða vegg, vera belja, hundur, fugl og köttur, skrapa af mér hnén, reyna að lækna hnén, fara í gufu, blak, Dalvík, orðin veik, busa, greina karakter og búa til heilsteypta persónu, þamba vatn og pissa mikið, syngja, búa til nýjan boltaleik með fanney, leggja á borð hundrað sinnum á einum klukkutíma, gera í staðin fyrir að vera, vera í staðin fyrir að gera, glósa og glósa og glósa og þar fram eftir götunum.
Óendanlega skemmtilegt!
En núna þarf ég að drífa mig því hádegispásan er að verða búin og búin að myndast röð til að nýta þessa einu netsnúru.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2008 | 15:50
Dal einn vænan ég veit
Og þá er aðeins sólarhringur í að lagt verði í hann í Dalinn fagra!
Er farið að hlakka skuggalega mikið til.
Á samt eftir að gera bókstaflega allt! Og haug ofan á það!
Er samt búin að tína til búninga sem Fanney getur haft með sér á Ágústunámskeið. And that's it!
Var að skipta úr afleysingum yfir í elligarðahóp í vinnuskólanum sem þýðir að núna verð ég bara með minn fasta hóp og ég þarf ekki að hjóla upp í Árbæ á mesta lagi hálftíma á hverjum morgni. En þetta gerir það samt að verkum að ég fékk að læra 2x um garðrækt en ekkert um öryggi, skyndihjálp eða fjölmenningu. En ég veit þó hvernig sjúkrakassinn lítur út....!
Er líka að reyna að koma saman styrktardótinu fyrir Sýni. Það virðist loksins vera að ganga upp!
Er svo búin að vera í partýnefnd fyrir Cosi fan tutte-partý/reunion og það skellur á í kveld, eða kl. 17:00 fyrir nefndina. Á reyndar eftir að fara í sturtu og taka mig til og búa til kartöflusalatið en það er allta að mjakast.
Þá er eftir að eiga símafund við Helga út af verkefninu okkar, fara í partý, þrífa alla íbúðina fyrir brottför, pakka, klára styrktarbeiðni, sofa smá, mæta í vinnuna, leggja af stað.....
Og svo koma 9 svefnlitlir dagar fullir af krefjandi verkefnum og skemmtilegheitum!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.6.2008 | 18:43
Frí
Þetta er búið að vera fínasta frí. Er búin að gera helling....
...eins og að:
Fara á aðalfund
Bjóða mig fram í varastjórn Hugleiks og komast í hana
Labba úr vesturbænum í hlíðarnar og hjóla upp í smáíbúðahverfi
Horfa á Bingó með öðrum bingóurum
Athuga kaffihúsaflóru miðbæjarins rækilega
Labba aðeins meira
Fara í Grasagarðinn
Fara á Sex and the City í bíó
Tónlistarnördast með Fanney
Vera hárgreiðslumódel
Labba
Hitta Heiðrúnu
Hitta Sólveigu
Hanga
Sálast (sem hefur öðlast nýja merkingu hjá mér og Helga Rafni)
Sýnast (sem hefur einnig aðra merkingu)
Já og labba
Og klukkan níu í fyrramálið er fríinu lokið en verður tekið upp að nýju um miðjan ágúst.
Gleðilegt sumar!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.5.2008 | 17:14
Kaffihúsarölt
Og sumarið er næstum því komið :o)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2008 | 18:53
Þetta reddast allt!
Komin með sumarvinnu og búin að redda íbúðamálum fram í desember!
Húrra fyrir pylsugerðarmanninum!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2008 | 01:24
Áfram Ísland!
Bjóst ekki við þessu...get ekki einu sinni munað hvernig blessað lagið hljómar. This is my life!
En gaman engu að síður!
Í staðin fyrir að horfa á Eurovision fór ég á burtfararprófstónleika hjá Sveini Dúu sem voru frábærir! Hjartað missti svo oft úr slag að ég held ég þurfi að láta lækni athuga það á morgun. Hann toppaði sig eiginlega í hverju lagi á fætur öðru! Shi!
Svo fór ég í Eurovision-partý til Hildigunnar og það var mikið stuð! Er núna heima hjá mömmu og held ég nenni ekki að hjóla heim strax...ætla að leggja mig í nokkra tíma og fara svo af stað, en ég var búin að lofa Særúnu Sætu að hjálpa henni í smá hreingerningum í fyrramálið og svo að hitta Heiðrúnu mína og svo að hitta Andra og svo þarf ég líka að sinna smá Sýnisstöffi...!
Það tekur á að vera í "fríi"!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2008 | 19:11
Fyrsta færslan...
...á nýrri tölvu!
Já þá hefur hún verið tengd við netið í fyrsta....nei oki...annað sinn!
En þetta er í fyrsta sinn sem ég geri það bara til að dunda mér :o)
Vaknaði kl. 8 í morgun! Og fór til Kef að rúnta! Svo hélt ég að það væri að koma kveld en þá var ég bara að fara að vinna og allur dagurinn eftir!
Svo vann ég og fólk var með pínu vesen eins og gengur og gerist
Og núna sit ég á Næsta og fann horn þar sem netið næst...og er að pæla í að fá mér ostabakka því ég er svöööööng....og kannski maður bara fái sér eitt rauðvínsglas eða svo...af því bara...!
Nenni nefnilega ekki að hjóla heim til að hjóla hingað aftur kl. 20
Þannig það er bara OSTUR í kvöldmatinn :o)
Það er allavega betra en núðlur ;o)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2008 | 15:31
Beauty and the Beast
Vildi bara láta ykkur vita að Facebook getur sagt þér hvort þú sért falleg/ur eða ljót/ur með bara einum spurningalista!
Hvernig fór fólk að áður fyrr? Var bara ljótt og vissi ekki af því!
Sem minnir mig á það að ég fór á sýninguna Sá ljóti seinasta föstudagskveld. Mjög vel unnin sýning í alla staði. Óheppin þið sem misstuð af, en ég held að það sé hætt að sýna hana. Flott handrit og Vignir og Jörundur áttu frábæran leik. Nokkur smáatriði sem hefði mátt slípa betur en ekkert sem stakk mann.
But back to work!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.5.2008 | 14:15
Góðan dag!!
Ég sprakk ekki...en var ansi nálægt því!
Var í vinnunni í rúma 4 tíma í gær og svaraði alveg einu símtali! Ég var svo fegin þegar klukkan varð 18:00..
Hitti vinkonuhópinn frá Laugum um kveldið og það var gaman eins og alltaf. Magga bauð heim þar sem Hebbi litli var í rokkna stuði! Hann var vakandi þangað til við fórum um hálf tvö. Svo held ég að við verðum bara að fara að skilja það að hópurinn mun alltaf tvístrast þegar við förum niður í bæ þar sem við höfum ákaflega mismunandi skemmtistaðasmekk. Við Sólveig og Linda löggðum okkur fram og vorum í smástund inni á Hressó. Svo var það bara gamli góði Næsti og svo pöpparölt dauðans. Edrú manneskjan í hópnum var alltaf að draga hinar hingað og þangað, en sem betur fer fannst þeim það bara fínt :o)
Var skutlandi fólki hingað og þangað og meira að segja upp í Hafnarfjörð langt fram eftir morgni. Svo þegar ég kom heim ætlaði ég bara ekki að geta sofnað og ég er eiginlega ekkert búin að sofa og mætt núna í vinnu og ekkert þreytt. Skil þetta ekki alveg. Vona að þreytan gangi ekki í skrokk á mér seinna í dag!
Svo er ég búin að fá nýja tölvu! Hún hefur hlotið heitið Elaine the Lady og er hvítur og fallegur makki.
Og ef einhver veit um sumarvinnu handa mér og/eða íbúð þá má sá hinn sami hafa samband.
Squirley-Bob!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)